Sunday, August 30, 2009
Þekkið þið þennan bát?
Þessi bátur var að velkjast í fjörunni við Litlu Drageyri 30 ágúst. Eins og áttin var um helgina gæti bátinn hafa rekið frá Hvammmi, Vatnsenda eða Dagverðarnesi.
Friday, August 28, 2009
Rotþrær hnitsettar - Skilaboð frá Skorradalshreppi
Þessa daganna er Ólafur Guðmundsson fyrrverandi byggingafulltrúi að hnitsetja rotþrær. Er hann byrjaður í Vatnsendahverfinu og Fitjahlið. Fer síðan á Indriðastaði, Hvamm og Hálsa.
„Í næstu viku verða rotþrær hnitsettar og í framhaldi verða þær hreinsaðar af Hreinsitækni ehf, en stefna að byrja fyrstu daganna í september. Er því óskað að lóðaeigendur merki rotþró sína með stöng eða veifu og hreinsi gróður frá, þar sem það á við, til að auðvelda losunina. Einnig grafi upp stúta sem eru niðurgrafnir.“
Með kveðju og fyrirfram þökk.
f.h. Skorradalshrepp
Pétur Davíðsson
P.S. Að auki má benda mönnum ef þeir eru með læstar keðjur við heimreið að skilja þær eftir ólæstar svo Ólafur geti komist að rotþrónum með tæki sín og tól. Félagið mun leita frétta af framvindu verksins svo félgsmenn geti fylgst með.

Wednesday, August 26, 2009
Félag sumarhúsaeigenda í Hvammi opnar heimasíðu
Félag sumarhúsaeigenda í Hvammi hefur opnað heimasíðu fyrir félagsmenn. Á heimasíðunni okkar getur þú fengið upplýsingar um starfsemi Félagsins. einnig er hér að finna myndefni sem tengist svæðinu.
Á fréttasíðunni flytjum við fréttir af því helsta sem er að gerast á Hvammssvæðinu og af málefnum sem tengjast Skorradalnum. Einnig tökum við fagnandi á móti aðsendu efni
Undir liðnum “Félagið” eru upplýsingar og stjórn félagsins, lög og reglugerðir, fundargerðirn og annað sem tengist félaginu.
Á myndasíðuni birtum við myndir úr Skorradalnum. óskum sérstaklega efir að fá myndir frá félgsmönnum. Ekki er verra að fá góðar sögur með.
Ef þú vilt koma á framfæri athugasemdum um síðuna, félagið, senda skilaboð til stjórnar, eða senda okkur efni má gera það í gegnum liðinn “Hafðu samband” .

Subscribe to:
Comments (Atom)