Showing posts with label Fréttir. Show all posts
Showing posts with label Fréttir. Show all posts

Thursday, September 3, 2009

Hæ, bálið brennur

101_0119Sú hefð hefur skapast hjá Sumarhúsafélögum í Skorradal að efna til varðelds um verslunarmannahelgina. Hingað til hefur ekki verið sérstök brenna á Hvammssvæðinu. Hafa margir sumarhúsaeigendur á Hvammssvæðinu nýtt sér brennuna á Vatnsenda. í sumar var breyting á og var kveiktur varðaeldur á ströndinni fyrir neðan Hvammsbæinn. Þar fengu gestir á Hvammssvæðinu tækifæri til að hittast og spjalla og syngja saman. Bestu þakkir til Skúla og Birgis sem höfðu veg og vanda að brennunni. Settar hafa verið inn myndir frá þessum atburði á myndasíðunni.

Wednesday, August 26, 2009

Félag sumarhúsaeigenda í Hvammi opnar heimasíðu

Félag sumarhúsaeigenda í Hvammi hefur opnað heimasíðu fyrir félagsmenn. Á heimasíðunni okkar getur þú fengið upplýsingar um starfsemi Félagsins. einnig er hér að finna myndefni sem tengist svæðinu.
Á fréttasíðunni flytjum við fréttir af því helsta sem er að gerast á Hvammssvæðinu og af málefnum sem tengjast Skorradalnum. Einnig tökum við fagnandi á móti aðsendu efni
Undir liðnum “Félagið” eru upplýsingar og stjórn félagsins, lög og reglugerðir, fundargerðirn og annað sem tengist félaginu.
Á myndasíðuni birtum við myndir úr Skorradalnum. óskum sérstaklega efir að fá myndir frá félgsmönnum. Ekki er verra að fá góðar sögur með.
Ef þú vilt koma á framfæri athugasemdum um síðuna, félagið, senda skilaboð til stjórnar, eða senda okkur efni má gera það í gegnum liðinn “Hafðu samband” .